Hvað með icesave ?

Getur maður virkilega baðað sig í Evrópu áhyggjulaus?  Hvað með icesaveskuldirnar getur maður baðað sig áhyggjulaus með þær á bakinu?
mbl.is Hægt að baða sig áhyggjulaus í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KREPPUTROMP

Þarna fauk trompið sem margir litu vonaraugum þegar landið seig á hliðina.Þetta tromp er ekkert fokið burt,verður kannski hugað að þessum möguleika þegar olíuverð nær hæstu hæðum. Þetta liggur djúpt undan landi og er örugglega dýrt að vinna olíu þarna.Eins eru stærstu olíulindir heims í Kanada en blandaðar sandi svo þær eru illvinnanlegar.Er verið að vinna í því máli :"

 

Oil sands, also known as tar sands, or extra heavy oil, is a type of bitumen deposit. The sands are naturally occurring mixtures of sand or clay, water and an extremely dense and viscous form of petroleum called bitumen. They are found in large amounts in many countries throughout the world, but are found in extremely large quantities in Canada and Venezuela.[1]

Oil sands reserves have only recently been considered to be part of the world's oil reserves, as higher oil prices and new technology enable them to be profitably extracted and upgraded to usable products. Oil sands are often referred to as unconventional oil or crude bitumen, in order to distinguish the bitumen and synthetic oil extracted from oil sands from the free-flowing hydrocarbon mixtures known as crude oil traditionally produced from oil wells.

 


mbl.is Hættir við olíuleit á Drekasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum við að borga svona mikið?

Samkvæmt því sem lagaprófessorinn segir þá verðum við að passa að borga meir en okkur ber Hérna kemur álit Eiríks ,sem er athyglivert .En flest erum við sammála um að við verðum að borga einhverjar innistæðubætur en þær mega ekki vera hærri en okkur ber  ,  sjá :

“Menn rugla tvennu saman,” segir Eiríkur. “Neyðarlögin kveða aðeins á um að allar innstæðukröfurnar, án tillits til fjárhæðar, njóti forgangs. Það þýðir að þær eru jafnsettar þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans, sama hvort þær eru háar eða lágar.

Ef ein innstæða er 20 þúsund evrur, og við gefum okkur að 75% komi upp í kröfurnar, þá koma inn 15 þúsund af þeirri innstæðu. Þar sem íslenski innstæðutryggingasjóðurinn tekur á sig lágmarkstrygginguna, 20.887 evrur, þá fellur mismunurinn á hann. Fyrsta greiðslan ætti því auðvitað að ganga upp í okkar lágmarkstryggingu. Ef við gefum okkur að innstæðan sé 100 þúsund evrur, þá koma inn 75 þúsund evrur, sem mætir að fullu okkar skuldbindingum. Það sem umfram er rennur til breska og hollenska tryggingasjóðsins og síðan koma kröfuhafarnir síðastir.”

Eiríkur segir neyðarlögin engu breyta þar um. “Þau segja aðeins að 100 þúsund evra reikningurinn eigi rétt á að fá hlutfallslega greitt úr þrotabúinu, ekkert síður en 20 þúsund evra reikningurinn. Um það er enginn ágreiningur. En þau segja ekkert um það til hverra þessir fjármunir eiga svo að renna. Ef Íslendingar fá ekki fyrstu greiðslu úr búi Landsbankans upp í lágmarkstrygginguna, þá erum við í reynd að taka á okkur meiri ábyrgð en kveðið er á um í Evróputilskipuninni.”


mbl.is Enn fundað um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komst í leitirnar.

Yarisinn komst í leitirnar ,en skemmdur. Á Íslandi er ekki stundaður skipulagður nytjastuldur á bílum eins og á meginlandi Evrópu,yfirleitt sést bíllinn aldrei framar ef hann hverfur þar.Þegar ég tók bíl á leigu fyrir tveimur árum í Kaupmannahöfn  mátti ég ekki keyra hann til A-Evrópu. Á Íslandi er bara tilviljanakenndir bílaþjófnaðir og virðast menn ekki geta keyrt stolinn bíl 100 metra örðuvísi en að rispa hann eða skemma.Bófagengin  frá A-Evrópu fara örugglega betur með bílinn þinn en þú sérð hann tæplega aftur.rispaðan eða órispaðan.Hérna á fróni hafa menn verið að taka bíla til að komast heim af balli en það eru um 20 ár síðan það var tæknilega mögulegt,geri ég ráð fyrir.
mbl.is Fluttur á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra er seint en aldrei

Betra er seint en aldrei .Aldrei of seint að iðrast .Hann hefur kannski verið á leiðinni að skila en aldrei komið því í verk.
mbl.is Skilaði bók eftir 46 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarakaup?

 Í haust þegar allt fór á haus fór Glitnir á aðeins 300 milljónir norskar sem var aðeins brot af kaupverðinu.Vonandi fáum við sanngjarnara verð fyrir K.B bankann í Lúxemburg.     Dagbladet :       " 300 millioner for Glitnir er et godt kjøp Vi ønsker å kjøpe Glitnir fordi det er en spennende mulighet for oss til å øke tilstedeværelsen i det norske markedet. Kjøpet innebærer en vekst for alliansen på cirka ti prosent, sier Eldar Mathisen, administrerende direktør i Sparebank .SpareBank 1-gruppen betaler 300 millioner kroner for alle aksjene i den norske banken.
- Dette fremstår som en lav pris, men må sees på bakgrunn av hvordan bankvirksomheter prises nå for tiden. Vi har sett tilsvarende lave nivåer, sier Mathisen.

 


mbl.is Havilland tekinn við af Kaupþingi í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlir koppar á sjó dregnir.

Ólíklegustu bátar eru komnir á sjó skilst mér sumir sjómennirnir kannski líka óvanir .En þessi aðgerð Sjávarútvegsráðherra hefur spýtt nýju lífi í hafnir landsins.En eru þetta strandveiðar? Er þetta ekki bara veiðar á grunnslóð?Eru strandveiðar ekki stundaðar frá ströndu líkt og margir gera uppá síðkastið og hafa útlendingar verið duglegir við það.Sá í fjölvarpinu mynd frá Kína þá eru sumstaðar aragrúi af fólki á klettum og skerjum að reyna að ná sér í fisk virðist vera mjög vinsælt sport þar.
mbl.is Þrír bátar vélarvana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moskvits og malarvegir.

Ég man eftir þessu Valhallarhóteli  í endurminningunni þegar hótelið á Þingvöllum og Eden í Hveragerði voru aðalaðdráttaraflið á sunnudagsrúntinum..Það var alltaf fjölmenni á sunnudögum á Þingvöllum og við hótelið.Heimsótti hótelið fyrir 3-4 árum og voru fáir gestir  í kaffiteríunni þó það væri hásumar.Jæja það hafa bara komið nýir hlutir í staðinn.

Sólópróf

Væri lausn að láta ekki full ökuréttindi strax eins og tíðkast í fluginu.17 ára unglingur getur rúntað með jafnöldrum sínum á öllum tímum sólarhringsins! 17 ára unglingur mætti keyra á daginn í fylgd með fullorðnum (Æfingarleyfið)

mbl.is Börn með drápstæki á milli handanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hörður Halldórsson

Höfundur

Hörður Halldórsson
Hörður Halldórsson

Blogg er góð leið til skoðanaskipta  ,ef menn vanda sig.

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • h h jök,,,
  • með Búlandstind í bakgrunn
  • Jökulsárlón júní 2011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband