Kaupa sér litla íbúð,góð fjárfesting.

 Getur verið að fólk sé hrætt við annað bankahrun ? Hóflega stórar íbúðir vel staðsettar eru til lengri tíma hin þokkalegasta fjárfesting, sennilega með því öruggara sem maður setur peningana í.Var það á verðbólguárunum alræmdu.
mbl.is Fasteignaverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytendablogg

Neytendablogg mætti stunda meira og markvissar á bloggáttum vefmiðlana.Fólk segir frá reynslu sinni af þjónustu og vörum.Reyndar skapast hætta á rógi en væri   væri hægt að ritskoða bloggin  að einhverju leiti?.Mjög sniðugt ef maður væri í þeim sporum að kaupa sér bíl eða þvottavél að fá reynslusögur.Ég er ekki að finna upp hjólið því að ég hef t.d. verið á vefnum "What Car? i" sem safnar upplýsingum um bíla og bílaumboð.Mbl.is er  ágætur vettvangur fyrir neytendablogg af því að hann er stærsta blogg gátt landsins.

 


Laugarásvideo

 

Laugarásvideo var ein af örfáum  "alvöruvideoleigum" í Reykjavík,sem bauð eitthvað úrval af gömlum myndum fyrir kvikmyndaáhugamenn.

 


mbl.is Eldsvoði að Dalbraut í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert fóru Icesave-peningarnir?

""Ef miðað sé við að svipuð fjárhæð hafi verið á Icesave-reikningum í lok júní og við hrun bankans, eða um fjórir milljarðar punda, námu bresku Icesave-innstæðurnar á þessum tímapunkti um 630 milljörðum króna. Samkvæmt þessu má því segja að stærstur hluti Icesave-peninganna hafi farið í bresk útlán. En einnig mætti taka svo til orða að Icesave-innstæðurnar hafi staðið undir útlánum bankans í Bretlandi.frétt endar semsagt ;:    Miðað við þessa frétt þá gefa  þessir peningar tekjur til breska ríkisins,því getur breska ríkið betur  en við tekið á sig byrðar af þeim þó svo vissulega verðum við líka að leggja af mörkum. .Þeir fá peningana  til baka að talsverðu leiti.


a að einu eða öðru leiti.

 


 


Verðum að lifa.

Auðvitað eigum við að greiða eitthvað í skaðabætur.Megum samt ekki ganga það nær okkur að þjóðfélagið stórskaddist til langs tíma.Þetta er svipað eins og maður sem lætur   lán falla á annan mann vegna fjárhagsörðuleika lánið er svo stórt að hann getur engan veginn greitt það.Það er skárra að tjónþoli fái eitthvað en ekki neitt.Reyndar er mjög algengt að menn láti lán falla á menn sem skrifa upp á fyrir þá .Þá röfla þeir sumir eða gefa löngutöng og þykjast ekki bera neina ábyrgð,svoleiðis hegðun er rosalega algeng á Íslandi.Að sýna iðrun eða smá lit er sumum ofviða.
mbl.is Fyrirvarar við Icesave jákvæðir segir Moody's
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4 milljónir € Evra ?

Hér hefur misritast ,en upphæðin á að vera þremur núllum meira + 000 .     4 milljónir € eru bara 720 milljónir sem mundi hrökkva skammt í  peningahítina. Man bara fyrir 20 árum þegar laxeldis  og fleiri fyrirtæki á landsbyggðinni  fóru í þrot þá voru útlánatapstölurnar ennþá í milljónum.Og allir voru að detta á límingunum og var einmitt notað sem rökstuðningur   fyrir einkavæðingu bankanna.Núna finnst manni hundrað milljónir vera smáaurar      ,þó ég gæti alveg þegið þær jafnvel eina .
mbl.is „Íslendingar vildu ekki lán frá Rússum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morrakot?Nýr leikskóli?

 Morakot hlómar eins og nafn á leikskóla nefnt eftir Morranum í  Múmíndalnum en reyndar frysti allt.Börnin mín eru að komast á táningsaldur svo það eru að verða nokkur ár síðan við horfðum saman á Múmínsnáðann og vini hans.
mbl.is Morakot ógnar milljónum manna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er hún Snorrabúð stekkur.

Man hvað var vinsælt að fara á Þingvelli í gamla daga.Fór á Valhöll fyrir 3-4 árum um hásumar og voru fáir á ferð aðallega útlendingar.Man fyrir 30 til 40 árum var troðfullt af fólki og bátaleiga í krikanum sem var vinsæl.Síðan þá hafa komið betri bílar og betri vegir,og fólk fer miklu  víðar Aðaláfangastaðirnir á sunnudagsrúntinum voru Eden í Hveragerði og Valhöll á Þingvöllum,Bláa Lónið var ekki til.Sumarbústaðaeign var bara brot af því sem er nú á dögum.
mbl.is Grunnurinn kominn undir græna torfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónarsviptir

Sjónasviptir að þessum þætti.Ekki súta allir kompás,en kompás  fletti ofan af ýmsum í þjóðfélaginu,kom við kaunin á mörgum.Ekki veitir af rannsóknarblaðamönnum núna.


mbl.is Dagar Kompáss taldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hörður Halldórsson

Höfundur

Hörður Halldórsson
Hörður Halldórsson

Blogg er góð leið til skoðanaskipta  ,ef menn vanda sig.

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • h h jök,,,
  • með Búlandstind í bakgrunn
  • Jökulsárlón júní 2011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband