15 ára óvitar

           Það voru 15 ára gamlir drengir sem gerðu þetta.15 ára drengir eru engir óvitar.Ég hef aldrei fattað skemmdarverk eða hvatan af því.Fatta þó frekar stuld á verðmætum þó það sé nógu slæmt að verða fyrir þjófnaði, en svona skemmdarverk eru algjörlega óskiljanleg.Heyrði sögu sem ég sel ekki dýrara en ég keypti hana.Í Harlem í New York fá símklefar alveg að vera í friði þó allt sé morandi af glæpalýð.þá hvarflar ekki að lýðnum að skemma símaklefana  (Bófarnir nota símklefana í vissum viðskiptum)Bófarnir passa upp á símklefana og dirfist engum að skemma þá.



mbl.is Eldur í Waldorfskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slysadeild á Lansann?Stórslys.

Hélt að ég fengi fyrir hjartað þegar ég hlustaði á kvöldfréttir.Var verið að fjalla um nýja Landspítalann og var Björn Zoëga fyrir svörum .Á að byggja nýja Landspítalann fyrir peninga frá lífeyrissjóðum.Sagði læknirinn að þessi nýja bygging myndi leysa gamla Borgarspítalann af  og gæti verið með slysa og bráða móttöku,þá væntanlega flyst hún þangað  vestur .Allt þetta mál er reginhneyksli frá upphafi.Landspítalinn er rangt staðsettur miðað við dreifingu mannfjölda og umferðarþunga ,svo bætist við ef það er að marka lækninn að slysadeildin eigi að vera þarna líka.Semsagt slysadeildin verður flutt í 101 .Geta þessir menn ekki sett þessa ákvörðun á slysadeild hún er svo vitlaus að henni veitti ekkert af því.Þessir menn eru alveg út á túni.

Áttu íbúð ?

 

 Á Íslandi hefur verið rekin sú stefna að menn eigi sínar íbúðir sjálfir ,en ekki vera í einhvers konar félagslegu íbúðarprójekti eins og nágrannaþjóðirnar eru svo gjarnan.Leigumarkaður hefur verið býsna takmarkaður.Þetta hljómar ágætlega og hefur oftast reynst gott og hentar mörgum. Samt hefur gleymst í umræðunni að það að leigja getur verið miklu hentugra fyrir stóran hóp fólks.Eins og aðstæður margra eru þá eru þessar ´"eigin" eins og hlekkur sem hvílir á því.Átthagafjötrar.Kæmi sér betur fyrir suma að vera í "Búseta " eða leigja og geta farið burt þegar atvinnuástand hnignar,til þess staðar sem   atvinnuástandið er betra. Sveigjanleiki verður meiri .Vonandi hættum við að spyrja fólk rétt skriðið yfir tvítugt  : Áttu íbúð ?


Dæmdur barnaperri á Facebook.

Fólk hefur rekist á alræmdan barnaperra á Facebook.Myndast talsverð umræða um það..Svo fór ég að rýna í myndina af honum.Þá var þetta mynd að ég held úr DV og sést glitta í  löggubúning í öðru horninu.Mig minnir að þetta sé mynd úr DV .Ólíklegt að perrin sjálfur hafi stofnað til þessara síðu með hliðsjón af ofangreindu.Þetta er ekki beint  mynd úr fjölskyldualbúmi perrans.Því er ég viss um að einhverjir "húmoristar"hafi stofnað þessa Facebook síðu að perranum forspurðum.Skrítinn "húmor" það.En breytir því ekki að fólk á að vera á verði gagnvart netnotkun og nettengingum barna sinna.

Meðvirkni

Hann gæti ekki orðið svona þungur nema án aðstoðar annara.Heil hjörð af "kóurum"hljóta að hafa borið matinn,snakkið, nammið, og gosið ofan í hann.
mbl.is 450 kíló og á leiðinni í aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

80 prósent áhorf.

Man fyrir um 25 árum að í kaffitímanum í vinnunni var síðasti  þátturinn í Dallas umræðuefnið. Einhver fólskubrögð J R og framhjáhaldsvesen.Langflestir höfðu verið að horfa á sama sjónvarpsefnið.Óhugsandi í dag nema ef væri ef til vill Áramótaskaupið.Bara ein sjónvarpsrás og video var komið en það var ekki á hverju heimili,auk þess var dýrt að leigja spólur ,kostaði  í kringum 150 -200 krónur en það var algengt tímakaup þá.
mbl.is Ný kynslóð í Dallas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eins gott að ég vakti".

Minnir á söguna af karli sem er löngu látinn og hét Ísleifur.Þegar hann var unglingur einhvers staðar fyrir vestan ,Átti hann að passa bát sem var fullur af saltfiski við bryggjuna, hann átti að slaka endum  eftir sjávarhæð eða stytta.Hann var ungur og kærulaus og lagði sig .Þegar hann vaknaði snemma um morguninn var báturinn sokkinn  í höfninni .Þegar eigendurna bar að sagði hann við þá "það var sko eins gott að ég vakti báturinn er sokkinn".           Öryggisvarslan virðist ekkert koma í veg fyrir innbrot en styttir óneitanlega  tímann sem þeir hafa til  að vinna sína "vinnu" Reyndar voru húsbrotsmennirnir  í öðru tilfellinu myndaðir  en hvað hafa svoleiðis gögn skilað sér í rannsóknum og dómum ?
mbl.is Tvö innbrot í höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókunnugir í matinn ?

Ókunnugir í matinn? er ekki betra að elda einhvern sem maður þekkir? Nei   afsakið ég misskildi fyrirsögnina .Kannski býður maður einhvern tíman facebook vinum í mat ,það eru allt örðuvísi og meira gefandi samskipti en reyndar áreynslumeira.


mbl.is Ókunnugir í matinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wartburg

  Man einhvern tímann að ég skrapp til Danmerkur fyrir örfáum árum þá sá ég bíl sem ég hef ekki séð  á Íslandi mörg herrans ár en það var "gæðabíllin" Wartburg. Sá ég fullorðinn mann á bílnum.Kannski meiri gæðastimpill á manninum frekar en bílnum.Sumir menn geta látið bílana sína endast betur en aðrir.Þessi bíltegund er alveg búin að týna tölunni hérna heima.Svona heilt á litið finnst mér Danir vera nægjusamari í bílamálum en Íslendingar,kannski ekki að furða.  Almenningssamgöngur eru betri.Einnig sá ég slatta af Fiat Uno ,bílum sem eru einnig alveg hættir að sjást heima.   Bílafloti Íslendinga er býsna flottur,svo margir gesti reka í rogastans.

Ríkt fólk sérlega velkomið.

Yfirleitt er svona fólk mjög velkomið ,viss upphefð í því að fá svoleiðis fólk. Að fá ríkt fólk í hverfið eða götuna hækkar" statusinn".Breiðholtshverfin hafa liðið fyrir að vera stimpluð hálfgerð "Harlem " sem er mjög ómaklegt.Að fá svo kallaðar "félagslegar íbúðir " eru hinsvegar heitar kartöflur sem menn ýta frá  sér .Á Seltjarnarnesinu   t.d. var stefnt að því að  fá vel stætt fólk,  en í Breiðholti  var hlutfallslega mest af  félagslegum íbúðum sem setti einhvern stimpil sem var óréttlátur.Auðvitað  má ekki alhæfa en svona virðist þetta vera.Ríkt fólk sérlega velkomið í efra Breiðholt,kannski hækkar það íbúðarverðið þar og umtalið.Fólk hefur oft verið að snobba fyrir ríka fólkinu,sumir hafa leyft sér að líta niður á fólk í félagsíbúðum,þetta er kannski að breytast.Vonandi.
mbl.is Nágrönnum auðmanna líður illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hörður Halldórsson

Höfundur

Hörður Halldórsson
Hörður Halldórsson

Blogg er góð leið til skoðanaskipta  ,ef menn vanda sig.

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • h h jök,,,
  • með Búlandstind í bakgrunn
  • Jökulsárlón júní 2011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband