Til hamingju.

Sem áhugamaður um samnýtingu strætó og reiðhjóla fagna ég að fá mann sem notar reiðhjól sem farartæki að staðaldri.Gísli Marteinn og Dofri Hermannsson. geta gefið honum góð ráð , ef menn ýta flokkapólítík til hliðar.Þar eru menn í sitthvorum flokknum sem skilja að hjólreiðar eru alvöru samgöngumáti.
mbl.is Dr. Gunni formaður Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taka mynd af óskilamunum.

Mín tillaga til Lögreglunnar er að taka mynd af óskilamunum og setja á vef eða heimasíðu.Það er bara hægt að fara í Borgartún á milli 10 -12 einu sinni í viku .Maður þarf sem sagt að hafa svolítið fyrir hlutunu ef maður týnir hjóli.Lögreglan hefur engan hag augljóslega að hafa þetta aðgengilegra því afraksturinn rennur í sjóð á vegum lögreglunar að ég held ,veit það samt ekki fyrir víst.Fólk á að geta séð hjólin á netinu og kannað hvort að saknað hjól sé hjá lögreglunni,frekar en að þurfa að keyra í Borgartún með takmarkaðan opnunartíma og láta fylgja sér ofan í kjallara að tjakka hvort maður kannist við hjólið sitt.Besti flokkurinn í málið.
mbl.is Óskilareiðhjól boðin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsavíkurjógúrt eða timbur.

Hef aldrei skilið hvers vegna byggingavörur ,áburður og þannig vörur skuli ekki meira flutt milli landshluta með skipum.Dagvara verður alltaf flutt með bílum að sjálfsögðu.Skip væru meira notuð ef að flutningabílarnir myndu þurfa að borga fyrir slit á vegunum.Þarna er í raun um niðurgreiðslu á landflutningum að ræða. Gott mál .Verndum vegakerfið og notum strandflutninga miklu meira.
mbl.is Strandsiglingar álitlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver fann upp bílinn ?

Hver fann upp bílinn ? Við því fást mörg svör.En að gamni fann ekki Dunlop upp Bílinn ? Nei hann fann upp loftfyllta hjólbarðann.Hjólbarðinn var forsenda fyrir almennri notkun á bílum.Uppfinning fjórgengisvélarinnar var afrek en án loftfyllta hjólbarðans hefði bíllinn aldrei slegið í gegn.Verið mest notaður sem vinnu og vöruvagn og þessháttar ,en aldrei mikið til mannflutninga.Má segja að loftfyllti hljólbarðinn hafi gert bílinn notendavæanan. Notendavænt viðmót ?

The first practical pneumatic tire was made by John Boyd Dunlop, a Scot, in 1887 for his son's bicycle, in an effort to prevent the headaches his son had while riding on rough roads (Dunlop's patent was later declared invalid because of prior art by fellow Scot Robert William Thomson). Dunlop is credited with "realizing rubber could withstand the wear and tear of being a tire while retaining its resilience".[4]

Pneumatic tires are made of a flexible elastomer material, such as rubber, with reinforcing materials such as fabric and wire. Tire companies were first started in the early 20th century, and grew in tandem with the auto industry. Today, over 1 billion tires are produced annually, in over 400 tire factories, with the three top tire makers commanding a 60% global market share

http://en.wikipedia.org/w/index.php?title=Tyre_(wheel)&redirect=no


Gott "move"

Sterkur leikur hjá hjá Vilhjálmi.Eftirminnileg mótmæli hjá karlinum.Þeir eru aldeilis búnir að vaða á súðum þessir peningakarlar.Vilhjálmur er ekki einn af þeim sem urðu vitrir eftirá.Hann var farinn að hrópa í eyðimörkinni í miðju"góðærinu".Og sem hluthafi í Glitnir mótmælir hann þeim sem rændu Glitni innafrá og skildu litlu hluthafana með sárt ennið og ónýt hlutabréf.
mbl.is Hafði ekki lyst á gjafabréfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Dagsins apríl-søga"

Þetta var víst bara apríl gabb
"Dagsins apríl-søga á Portalinum um, at íslendski landsliðsspælarin, Ólafur Stefánsson, skuldi spæla við Kyndli í FM-finalunum, verður endurgivin í íslendska Morgunblaðnum.............Skuldi tað framvegis verið onkur, ið tók søguna um Ólaf Stefánsson fyri fult, skulu vit í øllum førum eina ferð fyri allar gera vart við, at hatta var okkara apríl-søga og at hon altso ikki er sonn"" tilv. endar .


mbl.is Ólafur með viku samning við Kyndil í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúdó eða skák.

Góð fannst mér kómmentið frá Andra Snæa að Íslendingar væru Lúdóþjóð miklu frekar en skákþjóð.Kannski höfum við bara verið að spila Lúdó."Einn leikur hugsaður fram í tímann og vonast efti sexu".Góður Andri.

Reykingar að deyja út ?

 

Gaman að sjá gamlar bíó myndir ,eiginlega fyrsta sem stingur mann er að sjá allt þetta fólk vera að reykja frjálslega á ýmsum stöðum í lestinni, í stofunni,á fundum o sv. frv .Engin að reykja í skammarkróknum eða úti á svölum.

Þarf ekki að fara nema tvo eða þrjáimages_973764.jpg áratugi aftur í tímann.Tala nú ekki eftirstríðsárin.images.jpgimages_973762.jpgronnie_s_cigs_small_973755.jpg


Sambandið og laxeldið.

Fyrirtæki tapa og græða , dafna eða fara á hausinn.Man samt aldrei eftir svona ástandi og svona stórt hlutfall hefur aldrei sést fyrr hér á landi.man fyrir um það bil 18-22 árum þegar kom hrina gjaldþrota (Sambandið ,laxeldið .Hagvirki  o,fl. ) samt ekkert í líkingu við sem við sjáum nú .Man að upphæðirnar sem talað var um voru miklu lægri þá ,sjaldan að maður heyrði talað um milljarða yfirleitt var talað um hundruð milljóna.Held samt að það hafi verið talað um milljarð þegar Sambandið gaf upp öndina.Vísitalan hefur hækkað 3-4 falt síðan þá en tölur sem heyrast í nú um töp  eru skelfilega háar.Við erum á sama stað og kommúnistaríkin 1990 þegar kommúnisminn gaf upp öndina.Lungað af rekstri var í kaldakoli.

Ósigur Kommúnismans 1990

og Ósigur Kvóta og pilsfaldakapítalismans 2008.


mbl.is 65% stærstu fyrirtækja gjaldþrota eða yfirtekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyfum þeim að stofna banka.

"Erfitt efnahagsástand og mikið atvinnuleysi mun á næstu árum setja mark
sitt á þá skipulögðu glæpastarfsemi sem haldið er uppi á Íslandi.
Umskiptum þessum fylgir að nýir möguleikar munu skapast fyrir
afbrotamenn".Tllv endar.Geta afbrotamennirnir ekki stofnað banka eða rekið banka?
mbl.is Ný tækifæri fyrir afbrotamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hörður Halldórsson

Höfundur

Hörður Halldórsson
Hörður Halldórsson

Blogg er góð leið til skoðanaskipta  ,ef menn vanda sig.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • h h jök,,,
  • með Búlandstind í bakgrunn
  • Jökulsárlón júní 2011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 215
  • Frá upphafi: 29323

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 141
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband