Allt þetta batterí .

Allt þetta batterí gæti verið deild í Tryggingastofnun Ríkisins með nokkrum mönnum og náð ekkert minni árangri.Þetta batterí snýst í kringum sjálfan sig.Gleymum því ekki að stærsta réttlæting verðtryggingar eru  lífeyrissjóðirnir og innistæðan í þeim.Og ástæða þess að margt fólk hefur verið hlynnt verðtryggingunni og vaxtastiginu er vegna væntanlegra lífeyrisgreiðslna á efri árum.Svona kaups kaups.
mbl.is Meðalraunávöxtun lífeyrissjóða 2% síðustu 10 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögueyjan.

Ómar Ragnarsson kom einu sinni með frábæra skýringu á hvað átt væri við að Ísland væri sögueyjan.Hún fjallaði um stefnuljósanotkun Íslendinga en þeir segja öðrum með stefnuljósi hvaða beygju þeir eru búnir að taka og gefa stefnuljósið í miðri beygju  eða jafnvel eftir ! Hringtorg eru staðir sem fólk mætti brúka stefnuljósin meira ekki bara út úr þeim heldur gefa vinstra merki ef þú ætlar að halda áfram hringtorgið.


mbl.is Eftirlit með notkun stefnuljósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkeppni ? Er að koma samkeppni fyrir Bónus ?

Er að koma alvörusamkeppni fyrir Bónus ? Maður bíður spenntur að sjá þetta komast á koppinn.Bónus er enn með besta verðið þó aðrir geti verið með góða spretti.Heildardæmið er oftast  Bónus í vil.Þú færð mest fyrir peninginn þar..Kannski er að koma samkeppni núna.


mbl.is Styttist í opnun Sparó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissu að krónan mundi síga.

 

Hvar fær maður myntkörfulán núna.? Var ekki hætt með þau .Myndi gjarnan fá svoleiðis

lán núna.Þeir öttu þeim að fólki þegar krónan var ofskráð.Vissu akkúrat að  Krónan  myndi síga ( held samt að næstum engin hafi séð hrunið fyrir sama hvaða Nostradamusar pípa núna  ) Það átti reyndar engin von á þessu hruni. Held að Lýsing og SP fjármögnun hafi  samt vitað að Dollarinn yrði ekki lengi í 60 krónum og Evran í 80 kallinum.Hvar fær maður myntkörfulán núna ? Hefði maður getað fengið myntkörfulán 2006 og fengið gjaldeyrinn inn á gjaldeyrisreikning.Nei .að var aldrei afgreiddur út neinn gjaldeyrir bara krónur með viðmið í erlendum gjaldeyri.


mbl.is Dómnum verður áfrýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pabbi í steininum.

51HPBKAPHML._SL500_AA240_

"Dad's in Prison".Ætti kannski einhver  að þýða þessa bók á Íslensku?


Skuldir sjávarútvegs 500 milljarðar ?

Skuldir sjávarútvegs 500 milljarðar ? Menn eru ekki sammála um töluna en þær eru miklar.

Það er ekkert á hreinu hvað Sjávarútvegurinn skuldar.Kannski 350-550 milljarðar? Það hefur ekki fengið staðfest.Alla veganna er fiskiskipaflotinn orðinn tiltölulega  gamall  sjá tölur hagstofu    ".Aldur fiskiskipa. Meðalaldur íslenska fiskiskipastólsins var 22,6 ár í árslok 2007. Meðalaldur vél- skipa var 21,2 ár, togaraflotans 24,2 "      Sennilega eru skuldir sjávarútvegs ekki til komnar vegna endurnýjunar á skipastól.Gæti trúað að peningurinn hafi farið í eitthvað annað en  í  endurnýjun á skipum og þess háttar Nú þarf líka að fara endurnýja flotann  að einhverju leiti úr því að flotinn er farinn að eldast svona. 


Hárgreiðslustofur ný hárgreiðsla.

Hárgreiðslustofur  ættu að bjóða þessa nýju  hárgreiðslu.Væri ekki lag að bjóða íslenskum konum upp á svona "fléttuhring" .Mér finnst þetta mjög flott greiðsla ,í það minnsta  klæðir það þessa konu mjög vel. Kominn tími að fá tískufyrirmyndir úr nýrri átt.Tilbreyting í því.
mbl.is Herm þú mér hver fegurst er...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liggur í augum uppi.

Þarf engan sérfræðing að sjá það.Held að flestir séu sammála um að vinna að þessum málum til betri vegar.Rakst á þetta í vef Vinnumálastofnunar.En þetta kostar en það kostar líka að aðhafast ekkert.sennilega miklu meira .

Vinnumálastofnun er að reyna sinna hinum atvinnulausu og eru að gera sitt besta ,bjóða fólki á námskeið og fleira.Vonandi tekst að koma þessu á koppinn.

Vinnumálastofnun hefur sett fram markmið

Settar hafa verið upp 5 leiðir sem til samans er ætlað að mynda yfir 2.000 ný starfs- eða námstækifæri fyrir ungt fólk: 

  1. allt að 450 ný námstækifæri í framhaldsskólum landsins fyrir ungt fólk án atvinnu
  2. allt að 700 ný námstækifæri fyrir fólk án atvinnu til náms á vegum símenntunarstöðva
    og til aðfararnáms að frumgreinadeildum
  3. allt að 450 ný starfsþjálfunarpláss og störf við átaksverkefni á vegum félagasamtaka,
    sveitarfélaga og annarra
  4. allt að 400 ný sjálfboðastörf
  5. allt að 400 ný pláss á vinnustofum ásamt endurhæfingar- og meðferðarúrræðum

mbl.is Þeim sem hætta í skóla og fá ekki vinnu líður verr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

A- Evrópsk laun?

 Nú eru á Íslandi borguð laun sem eru á skjön við það sem er borgað í löndum sem við berum okkur við eins og Norðurlönd  og þar í kring.200 000 þúsund í dagvinnu svo ég taki sem dæmi eru rúmlega 1100 evrur.Efast um að það séu margir á þeim launum í þessum löndum nema bótaþegar. og varla það Atvinnuleysisbætur eru um 155 þúsund  eða mjög nálægt því sem er 900 evrur Enginn  fullorðinn maður er á þeim launum í nálægum löndum trúi ég .Gæti samt þessi staða hjálpað okkur í atvinnuleysinu ? Geta Danir  og Norðmenn ekki komið t.d með skip sem þurfa að fara í klössun til Íslands.Við erum ekkert dýrari en Pólverjar.

Frakkland

Hef frétt að í  Frakklandi væri þetta ekkert mál .Lítill áhugi á samskiptum manna við hitt kynið utan vallar.Er það snepillinn" SUN " sem magnar þetta upp ?.Í Bandaríkjunum er svona mál  alltaf að koma upp.
mbl.is Roy Keane: Auðvelt að sparka í liggjandi mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hörður Halldórsson

Höfundur

Hörður Halldórsson
Hörður Halldórsson

Blogg er góð leið til skoðanaskipta  ,ef menn vanda sig.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • h h jök,,,
  • með Búlandstind í bakgrunn
  • Jökulsárlón júní 2011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 215
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 141
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband